mánudagur, 24. mars 2008

Þrið!

Sælir.

Hvað segja menn þá! Hljótið að vera orðnir vitlausir á hangsi og svoleiðis! Skelfileg úrslit á sun fyrir flesta í flokknum (hjá liverpool sko) - þvílíkur skandall að láta reka sig svona út af. Svo varði Reina massa vel svona fimm sinnum, en klikkaði alveg á fyrirgjöfunum. En svona er etta.

Við byrjum aftur í dag, þriðjudag, degi fyrr en skólarnir. A hópur byrjaði reyndar í gær.

- Æfing - Þrið - B hópur - Gervigrasið - kl.18.30 - 20.00.

Tökum þráðinn þar sem frá var horfið. Meiddir menn vonandi komnir í stand. Næstu leikir eru svo á laugardaginn kemur v ÍR! Kíkið svo á listana hér fyrir neðan - þurfum að klára það "kaffi"!

Sjáumst sprækir,
Ingves og Dórinho.

- - - - -

1. Eftir að borga fimleikana - 2000kr - borgist á næstu æfingu (það kemur að því strákar að ég sendi menn heim): Daði Þór - Hákon - Addi - Kommi - Kristó - Tryggvi - Matti - Mikki - Orri - Jóel - Sindri - Stebbi - Kobbi - Viktor G - Tolli (1000kr) - Davíð H (1000kr).

2. Eftir að klára testin í fimleikasalnum (fáum vonandi tíma í vikunni): Addi - Gummi A - Krissi - Jóel - Emil D - Jónmundur - Sindri - Kobbi - Flóki - Davíð H - Daði Þór.


3. Næstu test hjá okkur: Þolpróf (ft.) +Finishing.

- - - - -

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

verður A-hópur þá ekki með á þessari æfingu?
-Það stendur bara B-hópur, æfing....

Nafnlaus sagði...

mér skilst að næsta æfing hjá a hóp sé á miðvikudaginn! .is

Nafnlaus sagði...

kem ekki á æfingu er en að jafna mig af meiðslum :S

kv. Davíð Þ.

Nafnlaus sagði...

kemst ekki á æfingu.. kv. Krissi