mánudagur, 8. september 2008

Mán!

Sælir drengir.

Ég er svona hress með mætinguna undanfarnar þrjár æfingar! Veit samt að þetta er blanda af löglegum afsökunum og letingaskap - vonandi meira af því fyrrnefnda!

En síðasta vikan að detta í hús - höfum hana el nettó! Æfing í dag, mið, fös og svo örugglega slútt á laug. En aftur sparkvöllur í kveld, mánudag:

- Æfing - B hópur - Sparkvöllurinn - kl.20.00 - 21.15.

Reyna að mæta í gervigrasskóm (í versta falli með sléttbotna) ef ske kynni að völlurinn sé upptekinn (megum sko ekki hafa skipulagðar æfingar á vellinum).

Kallinn bar af á laugardaginn, held að Orri hafi verið sofandi alla æfinguna og Símon var jafnvel slakari en ég í marki! Veðja svo powerade að V.B. verði að vinna í kvöld!

Sé ykkur í kvöld.
Ingvi og co.

- - - - -

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eg og viktor erum ad vinna til 19 tannig vid komumst..... -tolli