Jamm.
Skelltum okkur sem sé upp á skaga í dag með eitt lið. ÍBV komst ekki þannig að við tókum sitthvorn æfingaleikinn v ÍA og KR. Topp dagur, sjá hér:
- - - - -
Mótherjar: Þróttur v ÍA og Þróttur v KR.
Tegund leiks: Æfingaleikir.
Lið: B lið.
Dags: Sunnudagurinn 18.nóv 2007.
Tími: kl.14.00.
Völlur: Gervigrashöllin upp á Akranesi.
Dómari: Nokkur pör sem stóðu sig nokkuð vel (tek algjörlega á mig snappið í KR leiknum).
Aðstæður: Grasið sjálft afar gott en ertu að grínast hvað var kalt þarna inni!
Úrslit v ÍA: 2 - 1.
Staðan í hálfleik: 2 - 0.
Gangur leiksins: 1 - 0, 2 - 0, 2 - 1.
Mörk: Flóki 2.
Úrslit v KR: 4 - 2.
Staðan í hálfleik: 2 - 2.
Gangur leiksins: 0 - 1, 1 - 1, 1 - 2, 2 - 2, 3 - 2, 4 - 2.
Mörk: Flóki - Tolli - Arnar Kári - Daníel Örn.
Liðið: Orri í markinu - Viktor og Jónmundur bakverðir - Arnar Kári og Nonni miðverðir - Stefán Tómas og Símon á köntunum - Diddi og Tolli á miðjunni - Flóki og Jóel frammi. Varamenn: Davíð Þór, Jóel og Jakob Fannar.
Almennt um leikina: Í heild var þetta bara nokkuð flott hjá okkur - leikmenn voru langflestir að standa fyrir sínu en við kannski slökuðum allir aðeins á í hálfleikjum tvö og þrjú. En við fórum á fullu í tæklingar og tókum vel á móti ía-mönnum og kr-ingum í þeirri deild. Við losuðum okkur vel og náðum oft að snúa vörn í sókn og keyra á þá. Við settum mörg glæsileg mörk og ef við spilum svona áfram þá erum við í góðum málum. Margir góðir leikmenn voru heima að þessu sinni - og sýna bara hvað þeir geta í næsta leik. Líf og fjör.
- - - - -
sunnudagur, 18. nóvember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ég skoraði líka ! :) ekki gleyma því
kv. Arnar Kári
flott úrslit
vel gert
Skrifa ummæli