laugardagur, 23. febrúar 2008

Leikur v Selfoss - laug!

Ó já.

Við gerðum þokkalega góða ferð suður á Selfoss í dag. Þrátt fyrir daufan leik í heildina kláruðum við hann nokkuð örugglega og var ég ánægður með menn. Hérna er allt um leikinn:

- - - - - -

Mótherjar: Þróttur 3 - FH 2.
Tegund leiks: Æfingaleikur.
Lið: C lið.

Dags: Laugardagurinn 23.feb 2008.
Tími: kl.16.00 - 17.30.
Völlur: Gervigrasið á Selfossi.

Dómari: Nettur selfoss gaur sem tók etta sóló.
Aðstæður: Völlurinn afar góður en það var ansi kalt, sérstaklega þegar líða tók á leikinn.

Úrslit: 4 - 0.
Staðan í hálfleik: 1 - 0.
Mörk: Danni Örn - Flóki - Davíð Þór 2.
Maður leiksins: Kormákur.

Liðið: Orri í markinu - Daði og Viktor G bakverðir - Kristó og Kobbi miðverðir - Starki og Jóel á köntunum - Addi og Kommi á miðjunni - Flóki og Danni Örn frammi. Varamenn: Símon, Davíð Þór og Viktor Berg.

Frammistaða:

Var melló hjá flestum, Orri vel á tánum í markinu, vörnin var traust en talaði lítið (að vanda). Kommi var virkilega duglegur og það sama gildir um Adda. Davíð Þór átti svo klassa innkomu og setti tvö.


Almennt um leikinn:
Vorum ansi daufir í byrjun leiks - eitthvað andleysi yfir mannskapnum. Við vorum samt starkari aðilinn allann leikinn og hefðum átt að bæta við fleiri mörkum. Vantaði líka meira tal og feilsendingarnar voru nokkrar. Nokkuð góð vinnsla á mönnum, kláruðum mennina okkar vel og bjuggum til fín færi. Svo bara áfram með smjörið.

- - - - -

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mótherjar: Þróttur 3 - FH 2.
Tegund leiks: Æfingaleikur.
Lið: C lið.

?
smá mistök ingvi:D